Ungir framsóknarmenn í Hafnarfirði
29.11.2005 18:17:38 / EKB

Karlaráðstefna

Þann 1.desember næstkomandi verður haldin karlaráðstefna.

Þetta er frábært framtak og bendi ég ykkur á að kynna ykkur hana á heimasíðu félagsmálaráðuneytisins. http://www.felagsmalaraduneyti.is/frettir/frettatilkynningar/nr/2140 

Viðburður sem ekki má láta fram hjá sér fara, karlmenn.


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.10.2005 22:58:50 / EKB

Smá um "íþróttir"

Þó hér eigi að mestu vera spjallað um politík þá get ég nú varla orða bundist. Var að horfa á Helgarsportið á RÚV áðan.  Þetta var nú ekkert nema slagsmál. Fyrst var sýnt frá einhverju móti hjá íslenskum ungmennum sem slógust og spörkuðu sem mest í andlit hvorst annars....frekar spez, vantaði bara að RÚV merkið væri rautt.  Ekki skánaði það.  Síðan var sýnt frá íshokkí leik hér í Reykjavík.  Ég verð að viðurkenna að ég horfi eiginlega á allt sem tengist íþróttum í sjónvarpi en þvílíkt og annað eins hef ég aldrei á ævinni séð.  Það sauð sem sé heldur betur upp úr í þessum leik, menn slógust með berum höndunum og úr varð eitthvað það ótrúlegasta sem undirritaður hefur séð í íslenskum íþróttum. 

Ég ætla að vona að það verði tekið hart á þessu.  Ég held að þarna hafi verið farið íllilega yfir strikið og finnst mér að menn þurfi að fá að gjalda fyrir gjörðir sínar.  Held að allavega 3 menn sem tóku þátt í þessum leik ættu að fá ævilangt keppnisbann.  Það verður gaman að sjá hvernig íþróttahreyfingin tekur á þessu máli.  Ef ekkert verður aðhafst í þessu máli held ég að íþróttalíf okkar Íslendinga sé á rangir leið.

Skora á ykkur að kíkja á Helgarsportið á www.ruv.is og dæma sjálf

EKB


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.10.2005 22:02:22 / EKB

Hefurðu eitthvað að segja?

Jæja þá.

Þessi síða var nú sett á laggirnar til að gefa ungum Framsóknarmönnum hér í bæ smá tækifæri til að tjá skoðun sína. Það voru nú einna helst samfylkingasinnaðir menn sem tjáðu sig en nú er komið að Framsóknarmönnum að fara tjá sig.

Förum nú aðeins að tjá okkur og endilega ef þið hafið eitthvað smellið og skondið að segja.....bæjarmál....landsmál.....prívatmál.....brandara!

Kv.Einar Karl


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.06.2005 19:56:55 / EKB

Stjórn SUF varar við afnám vaxtabótakerfisins

Stjórn Sambands Ungra Framsóknarmanna varar við hugmyndum um afnám vaxtabótakerfisins. Vaxtabæturnar eru eitt besta tæki sem hið opinbera hefur komið á til að hjálpa einstaklingum til að koma sér þaki yfir höfuðið og dregur þar með úr útgjöldum til húsaleigubóta til lengri tíma litið.

Fjöldi ungs fólks hefur stofnað til skulda og tekið vaxtabótakerfið með í reikninginn við sínar ákvarðanir og er því afar mikilvægt að ekki sé hreyft um of við kerfinu og ekki kemur til greina að leggja það niður.

Þó telur SUF að draga eigi úr tekjutengingu kerfisins til að draga úr jaðarskattaáhrifum, enda er ungt fólk sem er að koma sér þaki yfir höfuðið oft með þónokkrar tekjur en að sama skapi mikil útgjöld vegna námslána, húsnæðislána og annarra fjárfestinga sem nauðsynlegar eru í nútíma þjóðfélagi.

Lækka mætti eignaþröskuld kerfisins á móti, enda er tilgangur kerfisins að hjálpa fólki í fyrstu skrefum íbúðakaupa, meðan eignir þess eru litlar.


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.06.2005 15:55:34 / Ritstjórn

Meirihluti með Samfylkingunni?

Samkvæmt skoðanakönnun sem gerða var hér á síðunni og allmargir töku þátt vildu 71% sem tóku þátt vilja meirihluta með Samfylkingunni. 18% vildu Sjálfstæðisflokk og 11% aðra.

Það er ljóst að Framsóknarflokkurinn verður að fara alveg hreinn til næstu kosningar og ekki gefa neitt upp fyrr en og EF maður næst inn. Það er ekki sjálfgefið að hlaupa til Íhaldsins bara af því að svoleiðis var það síðast heldur skal láta forystumenn flokksins fara vel yfir þessi mál ef þessi staða kemur upp.

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.04.2005 12:34:07 / Ritstjórn

Hauka konur Íslandsmeistara í 7 sinn!

Ég verð að nota tækifærið og óska stelpunum í Haukum til hamingju með íslandsmeistaratitilinn. Þetta var 7 titilinn á 11 ár. Frábært. Einnig er það líka frábær að Guðmundur Karlson þjálfari liðsins var þarna að brjóta blað en hann er fyrsti þjálfarinn í sögu Hauka sem verður Íslandsmeistari bæði með karlalið og kvennalið.

Hann var þjálfari hjá karlaliði Hauka árið 2000.

 

Svo er það var að bíða eftir rimmu karlaliðs Hauka sem byrjar á morgun að leika til úrslita við ÍBV. Ég er sannfærður um Haukarnir vinni þetta enn eitt árið í karlaflokki, þó svo að mjótt verði á munum.

 

Hafnfirðingar eru bara að vera einráðir í boltaíþróttum hér á landi. FH er Íslandsmeistari í knattspyrnu og Haukar í handbolta og eiga möguleika að verja þann titil. Svo er kvennalið Hauka bikarmeistari í körfunni og svo eru handboltakonurnar í Haukum nýir íslandsmeistara síðan í gær.

 

Lifi sportið, lifi fjörðurinn!

 

Tómas Meyer

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2005 19:58:44 / Ritstjórn

Heilsugæsluna ekki undir einn hatt

Sú tillaga sem heilbrigðisráðherra, Jón Kristjánsson hefur sett fram ásamt sínu liði er að taka heilsugæsluna á höfuðborgarsvæðinu og setja undir einn hatt. Hafa eina yfirstjórn á þessu og þess háttar. Ég er sammála forsvarsmönnum Hafnarfjarðarbæjar um að þessi leið er ekki það sem er best fyrir heilsugæsluna. Ég er á þeirri skoðun að hafa þetta eins og það er í dag og ekki breyta þessu fyrirkomu lagi.

 

Ég er nefnilega ekki viss um að heilsugæslan muni þrífast betur í stærri einingu eða einni einingu. Þetta er mitt mat á þessu og vona ég að heilbrigðisráðherra láti af þessum draumi sínum og hafi þetta eins og það hefur verið og ekkert athugavert við það. Heilsugæslan hér í Hafnarfirði er rekin með miklum myndarskap og það er gott andrúmsloft í þeirri stofnun, góðir læknar og starfsfólk. Þannig hefur það verið um langt skeið.

 

Engar breytingar á þessu. Hafa þetta eins og það er.

 

Tómas Meyer

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2005 15:03:29 / Ritstjórn

Við mælumst með 11% fylgi og 7 þingmenn!

 

Í nýrri skoðana könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið www.heimur.is kemur fram að Framsóknarflokkurinn er með 11% fylgi.Ef gengið yrði til alþingiskosninga í dag og fengi 7 þingmenn.  Þetta er 7% minna fylgi en við fengum í alþingiskosningum árið 2003. Íhaldið mælist með mest fylgi eða 38%. Samfylkingin er með 31%. Vinstri Grænir eru með 14% og Frjálslyndiflokkurinn er með 5%.  Alls tóku þátt 816 manns þátt í þessari könnun en óvissir voru um 27% af afspurðum og líka álíka margir neituðu að svara þannig að innan við helmingur sem spurðir voru gáfu svar.

 

Samkvæmt þessari skoðana könnun væru þingsætum skipt þannig: Framsóknarfokkurinn 7 (12) Samfylkingin 20 (20) Sjálfstæðisflokkurinn 24 (22) Vinstri Grænir 9 (5) og Frjálslyndir 3 (4).

 

Samkvæmt þessu er ríkistjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks fallin er með 31 .þingsæti og stjórnarandstæðan er með 32 þingsæti.

 

 

Þetta er svo sem ekkert nýtt fyrir okkur Framsóknarmenn enda hafa skoðanakannanir aldrei haft rétt fyrir sér hvað okkur varðar. Flokkurinn er á góðu flugi við landsstjórnina og ekki mikið hægt að setja út á okkar menn þar.

Auðvita viljum við sjá betri tölur í svona könnunum, því Framsóknarflokkurinn á það skilið. Framsóknarflokkurinn er flokkur sem á að vera með 20-25% fylgi. Það segir sig sjálft.

 

 

Heimildir: www.heimur.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2005 13:17:12 / Ritstjórn

Skoðanakönnun: Ánægja með Halldór Ásgrímsson!

 

 

Lesendur síðunnar sem tóku þátt í skoðanakönnun sem var svo hljóðandi: Hvernig finnst þér Halldór Ásgrímsson standa sig sem forsætisráðherra. Könnunin var dagana 26 og 27 apríl. 54% fannst Halldór standa sig frekar vel. 33% fannst hann standa sig vel. 8% sögðu að hann stæði sig illa og 5% höfðu enga skoðun á því.

Þannig má segja að 87% af þeim sem tóku þátt eru ánægð með Halldór sem forsætisráðherra.


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2005 13:16:48 / Ritstjórn

Agnes Guðnadóttir varaformaður

 

Agnes Guðnadóttir er nýr varaformaður félags ungra framsóknarmanna í Hafnarfirði.

Agnes sem hefur verið ritari stjórnar síðan í haust tekur við af Jóhanni Skagfjörð sem er farinn úr flokknum. Agnes er dóttir Guðna Ágústssonar, varaformanns Framsóknarflokksins og Landbúnaðarráðherra. Björn Ingvar Guðbergsson tekur sæti í stjórn félagsins og verður ritari.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.04.2005 23:23:37 / Ritstjórn

Ágæta áhugafólk um Evrópumál, við vekjum athygli ykkar á þessum fyrirlestri á fimmtudaginn 28 apríl

Frédéric Baleine du Laurens: Hlutverk Frakklands í öryggis- og varnarmálastefnu Evrópu

Rektor Háskóla Íslands og Sendiráð Frakklands á Íslandi efna til opins fyrirlestrar Frédéric BALEINE DU LAURENS  um þátt Frakklands öryggis- og varnarmálastefnu Evrópu. Hann verður haldinn í Háskóla Íslands, Lögbergi, stofu 101, fimmtudaginn 28. apríl 2005, kl. 17:15- 18:15.

Fyrirlesturinn, sem verður fluttur á ensku, ber yfirskriftina ?France and the European security and defence policy.?


Frédéric BALEINE DU LAURENS  hefur starfað í frönsku utaríkisþjónustunni frá árinu 1972. Hann hóf þá feril sinn í lögfræðideild utanríkisráðuneytis Frakka, en hefur síðan komið víða við á ferlinum, vann um skeið sem sendiráðsritari franska sendiráðsins í Páfagarði og síðar í Buenos Aires í Argentínu, hann var framkvæmdastjóri menningarmála á aðalskrifstofu menningar- vísinda og tæknimála, og síðan aðalræðismaður í Leipzig. Á árunum 1994-1998 var hann sendiherra Frakklands í Namibíu, síðan í Botswana, en frá árinu 1998 hefur Frédéric BALEINE DU LAURENS verið aðstoðarframkvæmdastjóri skrifstofu alþjóða- og öryggismála í franska utanríkisráðuneytinu.


Frédéric BALEINE DU LAURENS  er einn helsti sérfræðingur Frakka á sviði
öryggis- og varnarmála, en sérsvið hans er þáttur Frakklands öryggis- og varnarmálastefnu Evrópu sem nú er í mótun.


Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og er öllum opinn. Allt áhugafólk um
öryggis- og alþjóðamál er hvatt til að sækja hann og taka virkan þátt í umræðum um þetta efni.

Evrópusamtökin


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.04.2005 22:59:30 / Ritstjórn

Miðstjórnarfundur 17. maí

Vorfundur miðstjórnar Framsóknarflokksins verður haldinn þriðjudaginn 17. maí n.k. á Hótel Sögu, sunnusal og hefst kl. 17:00 og er áætlað að honum ljúki kl. 22:00. félag ungra framsóknarmanna í Hafnarfirði á einn fulltrúa í miðstjórn, Framsóknarflokksins en það er Tómas Meyer.
Allar nánari upplýsingar má nálgast á skrifstofu Framsóknarflokksins í síma 540 4300


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.04.2005 14:21:28 / EKB

Landsbyggðin, tæknin og tækifærin

Fyrir nokkrum árum var mikið talað um að fjarvinnsluver myndu styrkja byggð á landsbyggðinni. Farið var heldur geyst af stað sem gerði það að verkum að mörg þessara verkefna duttu upp fyrir. Því miður er það svo að margir halda að fjarvinnsla á landsbyggðinni sé dauð en svo er ekki. Til eru nokkur dæmi um hið gagnstæða þótt að ekki fari það hátt. Hjá RARIK er t.d. rekið viðskiptaver sem svarar spurningum notenda.

Fyrir nokkrum árum var farið í skipulagsbreytingar þar sem hætt var að svara staðbundið, þ.e. að fyrirspurnum Austfirðinga var svarað af starfsmönnum RARIK á Austurlandi. Í staðinn fyrir það kerfi var tekið upp eitt þjónustunúmer til hagræðingar. Það þýddi þó ekki að allt batteríið væri flutt til SV-hornsins. Í stað þess var hópvinnukerfi notað til þess að viðskiptavinir RARIK fengju einfalda og óstaðbundna mynd af fyrirtækinu.

Vanir starfsmenn RARIK voru áfram kyrrir á sínum stað enda gerði samskiptatæknin staðsetningu þeirra að aukaatriði. Þessi útfærsla hefur reynst mjög hagkvæm fyrir fyrirtækið og jákvæð fyrir byggðarlög á landsbyggðinni. Vonandi munu fleiri fyrirtæki uppgötva kosti þess að nýta samskiptatæknina til að halda úti fjarvinnsluvinnustöðum á landsbyggðinni þar sem t.d. húsnæðiskostnaður er miklu lægri en á höfuðborgarsvæðinu.

 Stefán Þór Björnsson

Höfundur situr í stjórn FUF HF.


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.04.2005 13:49:14 / EKB

Líklegt að Agnes Guðnadóttir verði varaformaður

 

Líklegt þykir að Agnes Guðnadóttir taki við varaformennsku af Jóhanni Skagfjörð sem sagði sig úr flokknum í gær. Agnes hefur verið til þessa ritari félagsins og þykir hún koma helst til greina. Þar með er rofið langt tímabil karls í varaformanninum og ætti þetta að kæta skvísurnar í flokknum og jafnréttissjónarmið hans.

Líklegt þykir að formaður félagsins, Tómas Meyer muni bera þetta upp á næsta stjórnarfundi. Þá mun Björn Ingvar Guðbergsson, lagermaður taka sæti í stjórn félagsins en hann er í varastjórn eins og er að tillögu formanns.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.04.2005 13:41:00 / EKB

Jóhann Skagfjörð Magnússon hættur í flokknum

 

 

Jóhann Skagfjörð Magnússon sem verið hefur varaformaður síðustu ár hefur sagt úr flokkum. Þar með er hann hættur í stjórn félagsins. Ég vil nota tækifærið og þakka Jóhanni fyrir þann tíma sem hann hefur verið í forystusveit ungra framsóknarmanna í Hafnarfirði um nokkurra ára skeið.  Jóhann hefur ráðið sig til vinnu á stað sem ekki þykir æskilegt að vera flokksbundinn. Gangi honum vel í því starfi.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3